|
Fjölmiðlar og fleira gott
|
31.01.2010 15:16:01 / tumsa
Jarðarförin í fyrradag var falleg athöfn, ég hef ekki við verið við fjölmennari áður, þarna voru víst hátt í sexhundruð manneskjur. Afar fjölbreyttur hópur; háir og lágir, bæði kyn og allur aldur. Presturinn gat þess að þetta sýndi vel hvernig Hjödda var og hann sagði líka í lok athafnarinnar að honum væri vandi á höndum því að borist hefðu yfir 50 kveðjur og maður Hjöddu hafði beðið hann í öllum lifandi bænum að hlífa sér við öllum þeim lestri . Lesin var ein kveðja og aðstandendur fengu svo víst hinar á blaði. Sonur hinnar látnu flutti nokkur orð og gat þess meðal annars að mamma hans hafi haft það fyrir reglu að helst færi enginn út af Keramikloftinu án þess að hún sæi viðkomandi brosa. Strákurinn lýsti mömmu sinni með þeim hætti að flestir skelltu upp úr. Það var góð tilbreyting. Í gærkvöldi var ég svo á öndvegis þorrablóti með öndvegis fólki og dansaði hálfan annan helling. Setti mér það einbeitt að tala sem minnst og syngja ekkert. Sjálfsaginn sem það útheimti var voðalega mikill. Ég er nefnilega að fara að syngja fáeinar hendingar inn á plötu núna á eftir og þá líklega tjaldar maður því sem í boði er. Fólk við bestu heilsu getur reiknað með að verða hást eftir að blanda almennilega geði á svona háværum samkundum. Þetta slapp til held ég.
»
29.01.2010 01:08:53 / tumsa
Þetta sendi ég morgunblaðinu til birtingar bæði á netinu og pappírnum. Veit þó ekki hvort þeir birta á báðum stöðum. Það var komið klukkutíma fram yfir frestinn þegar ég sendi inn á miðvikudaginn en það hlýtur að komast einhvern tíma.
Undanfarið hef ég verið að lesa mikið af gömlum bókum. Í þeim eru stundum ennþá eldri frásagnir af lífinu í landinu. Þar kemur glöggt fram öðruvísi viðhorf gagnvart lífinu og dauðanum. Það hefur ekki breyst að allir vita að við deyjum, munurinn er sá að þá mátti búast við dauðanum svo miklu fyrr og mér liggur við að halda að það hafi tæpast þótt tiltökumál þegar fólk féll frá í blóma lífsins og fimmtug manneskja var gömul manneskja. Mér finnst ég um fimmtugt vera á besta aldri og hún Hjödda beinlínis ung. Breytir þar engu þó að við værum báðar orðnar ömmur fyrir nokkru. Ég fór fyrst að taka eftir Hjöddu á Hrafnagilssýningum, þar stóð hún ung og klár og glæsileg á bás með allskonar fínu handverki og hráefni af Keramikloftinu hennar. Síðar fór ég að leita til hennar eftir þjónustu og við kynntumst smátt og smátt og þá kom fljótlega í ljós hlýi grallarinn sem hún alltaf var. Ég þóttist hafa staðið mig vel þegar mér tókst að véla hana til liðs við Kaðlín og þar var hún ekki amalegur félagi. Það var ekki hennar stíll að koma þar hægt og hljótt inn um dyr og tylla sér á afvikinn stað heldur gustaði af henni þegar hún tók alla tiltæka í hlýtt fangið og knúsaði brosandi. Hún lagði alltaf gott til mála og ekki versnaði þegar hún færði með sér í hópinn tengdamóður sína sem var henni mikill styrkur þegar lægðir voru í heilsunni. Hjödda var stríðshetja. Hún stóð allt of stóran hluta æfinnar í stríði við andstyggilega sjúkdóma og maður stóð gáttaður og horfði á hana stundum, hvernig hún gat staðið upprétt og miðlað öðrum. Það var gott að vera nálægt henni og stundum ræddum við saman á alvarlegum nótum en svo sló hún yfir í að gera stólpagrín að öllu og öllum en alltaf mest að sjálfri sér. Þegar ég talaði við hana síðast flissaði hún yfir því að hundarnir hennar hefði náð hornum sem ég var með í búðinni. Ég brást heldur fegin við því ég átti henni skuld að gjalda svo að ég hafnaði því að leyfa henni að borga hornin. Hún sagðist ætla að bregða sér suður í klössun, ég skyldi bara bíða og sjá hvað hún yrði flott. Ég bað hana blessaða að nýta það í botn og hún tiltók að eyrun yrðu til dæmis alveg heillandi. Hún endaði svo á að taka pöntun hjá mér og við plönuðum verkefnin í vetur og þar gaf hún mér góð ráð sem endranær. Við hlökkuðum til. Ég tel að punkturinn aftan við sögu Hjöddu hafi verið settur á bandvitlausum stað.
»
29.01.2010 00:31:53 / tumsa
Það getur varla verið allt í lagi í höfði fólks sem fer í berjamó á Íslandi í janúarlok. Mér var líka að verða ansi kalt á klónum. Mér brá í morgun þegar ég sá að jörð hafði hvítnað aðeins. Ég fann nú samt það sem ég leitaði að en það var sortulyng, krækilyng og einir og allt saman með talsverðu af berjum á. Ég fann ekki eini með berjum fyrr en ég fór og lyfti undir greinarnar. Þá komu í ljós á einum staðnum fullt af grænum berjum sem sáust ekki í hríminu ofan á og meir að segja nokkur blá. Einiber verða ekki blá fyrr en á öðru ári og af einhverjum ástæðum eru árin mjög misjöfn hvað þetta varðar. Það var víst ekki mjög blátt á síðasta ári. Svo náði ég í grænan og ljósan mosa.
 Já og kortið er handgerður pappír og leður. Fer með þessa þúfu í Glerárkirkju klukkan ellefu í fyrramálið. Veit að Hjödda hefði kunnað að meta hana. Hún var svo mikið þannig.
»
27.01.2010 23:06:07 / tumsa
Ég er loksins búin að búa mér til afmælisdagatal. Geri bara töflu í excel, tvo mánuði á hverri síðu, tvo dálka fyrir hvern mánuð, í fremri dálki dagsetningarnar og í seinni dálki nöfn með fæðingarári. Ég komst í bobba þegar ég lenti í dagsetningu með tveimur nöfnum, þá tvítek ég bara dagsetninguna. Það gerist ekki svo oft í mínum hópi enn sem komið er. Jæja, fimm sinnum. Ég er búin að setja inn 73 nöfn. Þar af eru fimm látnir; afi minn, þrír foreldrar okkar Agnars og bróðir minn. Flestir eru í maí eða ellefu, en í mars og ágúst eru bara tveir. Ég er alveg ferlega léleg að muna þá afmælisdaga sem ég vil og á að muna. Nú fer þetta "dagatal" bráðum upp á vegg og við skulum þá ætla að vandamálið sé horfið. Eða hvað?
»
27.01.2010 10:25:21 / tumsa
Ég er dottin á kaf í bóklestur. Það kemur niður á bakinu því nú ligg ég mun lengur í rúminu heldur en þegar lestrarþörfinni er mikið til fullnægt í tölvunni. Í föðurarfinum var mikið af bókum. Pabbi hafði nokkru áður en hann lést fengið talsvert af bókum eftir systur sína svo að þetta voru allnokkrir hillumetrar sem við skiptum á milli okkar í níu staði. Nei, við vorum ekki "nema" átta systkinin en Yngvi heitinn á tvo syni. Ég tók mig til og fer í verkið eftir röðinni í hillunum. Nú er ég búin að vera að lesa fullt af ævisögum; Páll Ísólfsson, Fransicka Gunnarsdóttir, (langbest) Gunnar Friðriksson, Halldór E. Sigurðsson, Laufey Jakobsdóttir, Karl Oluf Bang, Sigurður Ólafsson, Sigurveig Guðmundsdóttir, Myriam Bat-Yosef og Jóhanna Kristjóns um þau Jökul Jakobsson. Auk þessa draumabók, þjóðsagnasafn og fáeinar skáldsögur. Svo las ég líka séra Hjálmar Jónsson sem ég fékk í jólagjöf. Ég verð hinsvegar að viðurkenna að ég guggnaði á að lesa Jón Þorláksson eftir Hannes Hólmstein. Ég las uppvöxtinn, námsárin og verkfræðingsárin en gafst upp á pólitíkinni. Sexhundruð blaðsíðna doðrantur takk.
Hér er talsvert af gömlu efni, til dæmis bók sem gefin er út 1962 með efni sem Torfhildur Hólm safnaði meðal Íslendinga í Vesturheimi um 1878. Hún hefur verið kölluð fyrsta íslenska skáldkonan. Þarna er gamalt fólk að segja frá ýmsu sem jafnvel er haft eftir forfeðrum þeirra þannig að margt í bókinni gerðist á átjándu öldinni. Í þessari bók leynist ýmislegt skondið enda er stafsetningu og máli haldið að mestu. Hér er sýnishorn: "Sigríður þessi var gæfukona, einkum hvað barnalán snerti, geðhæg, en mesta nápína og korkukvendi. Um hana var þessi vísa kveðin á bágu árunum:
Í eldhúsinu hún Sigga sat, sá hún fólk í nauðum, heldur gaf hún hundi mat en hungruðum drottins sauðum."
Hér er kafli sem heitir Ákvæðavísur. "Einu sinni var hálfgeðveikur maður fyrir norðan, sem fór í eymdum sínum manna á milli. Einhverju sinni ráfaði hann að bæ nokkrum, en stúlka ein á bænum sigaði á hann hundum í glettni. Mælti hann þá í hita vísu þessa:
Vertu aldrei ósigandi á ævi þinni, sigaðu frá þér sál og sinni, samviskunni, heyrn og minni.
Eftir það var hún sísigandi nótt og dag og dó litlu síðar. Annar geðtruflaður maður var fyrir norðan, líklega í Skagafjarðarsýslu, sem fór manna á milli. Fylgdu honum jafnan tveir menn. Einhverju sinni kom hann að bæ, sem heitir Enni. Þar var stúlka, sem hæddist mjög að honum. Daginn eftir fylgdu honum að venju tveir menn. Þegar þeir sneru heim aftur, mælti hann við þá vísu þessa:
Síhlæjandi á sjó og landi, svo ég kenni, segðu eg biðji að heilsa henni hláturstátu þar í Enni.
Eftir það varð stúlkan hálfu verra hlátursfífl en áður. Veiktist hún síðar og dó af hlátri."
Þetta með að hláturinn lengi lífið er þá kannski eftir allt saman á misskilningi byggt? Og hvort allt er í lagi að siga hundum? Við Agnar ættum líklega að fara að gá að okkur.
»
25.01.2010 22:26:28 / tumsa
Get ekki gengið almennilega frá jólaskrautinu því ég hef ekki kassann undir heimasmíðaða tréð og það sem því tilheyrir.
»
25.01.2010 11:59:53 / tumsa
 Við fylgjumst spennt með því hvort góða veðrið nær að losa okkur alveg við svellið af hlaðinu hérna áður en vetrar á ný. Ég er orðin mjög bjartsýn á það. Allir vegir auðir fyrir löngu. Ég þarf líka að gæta þess að vera búin að sækja mér efni í náttúruna mína til að fara með að jarðarför sem væntanlega verður undir vikulokin. Vil síður taka það mjög snemma en þó áður en snjóar á ný.
»
23.01.2010 10:38:29 / tumsa
Þegar ég var í Ameríkunni um árið fór ég á flóamarkað í Florida og keypti meðal annars ágætis kjól, víðan og síðan sem afar þægilegt er að vera í. Hann var hnepptur niður úr að framan og helsti gallinn var að hnappagötin héldu ekki nógu vel svo að ég var að möndla með nælur á bak við og allskonar vesen þangað til ég áttaði mig á að kjóllinn er alveg nógu víður til að óþarfi er að hneppa neitt. Þá tók ég allar tölurnar af, sikksakkaði saman öll 12 hnappagötin, saumaði listann niður þannig að nú á ég kjól sem er ekkert hnepptur. Svo tíndi ég saman tölur sem flestar eru af ýmsum ástæðum ekki söluhæfar og saumaði þær yfir hnappagötin fyrrverandi.
 Nýju tölurnar eru kjúkur, steinar, hrútshorn og hreindýrshorn.
 Verkið er búið að taka mig ein tvö ár, það er að segja að koma því í verk að setja tölurnar á. Kjörinn til að vera í á handverkssýningum til dæmis.
»
22.01.2010 17:27:32 / tumsa
Já, sumt er gaman. Það er gaman að borða plokkfiskinn sem ég var að gera og það er ennþá meira gaman að það var verið að bjóða mér á þorrablót þannig að ég virðist vera að fara á þrjú blót þetta árið og öll í öndvegis félagsskap.
»
21.01.2010 21:19:24 / tumsa
Ég veit satt að segja ekki alveg hvernig mér líður í dag. Í aðra röndina er ég ánægð og þakklát fyrir allt, ég er glöð og frísk og veit ekki annað en að sama gildi fyrir börnin mín og barnabörnin. Í hina röndina... Vinkona mín dó í dag. Hún var yngri en ég og ég get trúað ykkur fyrir því að hún var aldeilis ekki búin að því sem hún ætlaði að gera. Yfir hverju er maður svo að kvarta og tuða?
»
21.01.2010 09:35:21 / tumsa
Ég keypti 10 miða í sund í gærkvöldi. Nýtin manneskja eins og ég fer tæplega að láta þá fara til spillis. Eða... ég á reyndar í pússi mínu slatta af miðum í Húsavíkurlaugina sem ekki hafa verið truflaðir í nokkur ár svo að ekkert er öruggt í þessum heimi. Sundið varð af heilsufarsástæðum ekki eins langt og ég hefði kosið en það gengur bara betur næst. Það er alltaf sama bölvað brasið með talninguna, alveg sama hvað ferðirnar eru fáar. Ég ætla að reyna að muna að taka með mér teygjur til að hafa um annan úlnliðinn næst og færa á milli eftir hverja 50 metra. Hugurinn fer á þvílíkt flakk alltaf að mér er fyrirmunað að telja á meðan eitthvað sem breytist svona lúshægt. Í gærkvöldi lærði ég lokalagið sem er síðasta lagið á mínum lista. Við sungum það meir að segja aftur og aftur án þess að ég fengi hósta svo að þetta potast allt í rétta átt.
»
20.01.2010 11:04:19 / tumsa
Jahá, ég frétti á síðustu æfingu að ég væri að fara að syngja inn á disk einhvern tíma á næstunni. Það er nú ekki slæm tímasetning svona miðað við raddheilsuna eða þannig. Lögin úr söngleiknum Ólafíu verða boðin til sölu á sýningunum og ef til vill víðar. Þetta verður þó tæplega alveg strax því að ekki er byrjað að kenna sum lögin, held þó að búið sé að semja þau flestöll. Ég er búin að draga mig út úr öllum bakröddum þannig að það eru bara þrjú lög þar sem mín persóna kemur við sögu. Það reddast. Ég labba um og reyni á hæl og hnakka að vera ekki að svekkja mig yfir því sem ég fæ ekki breytt og breyta því sem ég get breytt. Það getur verið bras á köflum því ég veit fátt skemmtilegra en að syngja. Jú, líka að dansa. Geri það bara allt of sjaldan núorðið. Maður þarf nú heldur ekki alltaf að að vera að skemmta sér. Eða er það kannski? (Jú, helst.)
»
19.01.2010 04:46:27 / tumsa
Sit hér lítt sofin í myrkrinu og drekk grasate. Vaknaði við hósta á þriðja tímanum og var svona að vona að nóttin væri búin, en nei, tveggja og hálfs tíma svefn dugir ekki. Nú er ég búin að lesa Pál Ísólfsson eftir Mattías í von um að þeir svæfi mig þangað til ég mundi eftir fjallagrasatei með rifinni engiferrót í litla pottinum. Nú ætla ég að lepja það og gá hvort einhver er búinn að skrifa eitthvað gott hérna einhvers staðar. Er satt best að segja orðin hundleið á blessuðu plöntusullinu öllu saman. Búningamál komust á gott skrið í gærkvöldi og þar af leiðandi dreymdi mig út frá því áðan. Heilsan skánar held ég, ég lá í fyrrinótt og hlustaði um tíma á hjartslátt minn í höfðinu, það var sérkennilegt. Því var velt upp í gær hvort ekki hefði verið um að ræða jarðskjálftann í Grímsey, en ég held ekki. Mér er sagt að nemendur leik- og grunnskólans hérna séu margir við svipaða heilsu og ég sem styrkir þá von að um sé að ræða umgangspest sem hljóti að gefast upp á mér fljótlega. Ég er hitalaus svo að varla get ég verið í bráðri hættu. Eða þannig. Bara spurningin hvernig röddin kemur út úr þessu. Ohh, nú missti einhver aulinn perubita ofan í tebollann (ég sit hér ein). Ég held að þetta sé jafnvel í fyrsta skipti sem vökvi sullast á þetta lyklaborð. Ekki mikið samt sem betur fer.
»
18.01.2010 22:47:11 / tumsa
Hvað eiga Árni bróðir og Ylva Rún sameiginlegt? Og Jakob Ágúst eiginlega líka?
»
17.01.2010 16:55:46 / tumsa
Góð tilfinning að klára leiðinleg verk sem maður er búinn að trassa. Til dæmis gallaviðgerðir. Ég er líka að vinna í búningnum mínum, saumaði áðan stuttan kjól eða síðan bol eða hvað það nú heitir sem kvenfólkið fer í utan yfir buxur. Kjólefnið er slæða með pallíettum. Ég er búin að sanka að mér mýgrút af slæðum og klútum af öllum stærðum og gerðum úr Kolaportum og útsölum og stendur til að þæfa á þetta. Fyrst ætla ég sem sagt að nota eina þeirra sem kjól Kannski nota ég fleiri í leikritinu, sé til. Best að halda áfram viðgerðum um stund.
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 78 Alls: 160605
|