handverkur
30.04.2009 07:40:38 / tumsa

103. Menningin

Þegar ég var hjá pabba í gær heyrði hann mig segja í síma að mig langaði svolítið á tónleika að hlusta á Árna bróður syngja með Fóstbræðrum en ég ætlaði samt að láta það eiga sig. Pabbi lét þá hvorki laust né fast fyrr en ég var búin að hringja í tengdadóttur mína og ákveðið var að við færum. Jú, heiðra skaltu föður þinn og móður.
Þá dettur mér í hug að fyrir meir en 60 árum var pabbi að passa bróðurdóttur sína og þá hljómaði það svona:
Heiðra skaltu Kjartan föðurbróður.
En það kemur nú út á eitt. Næstum. Það hitti svo á að verið var að flytja pabba milli deilda rétt þegar mál var að drífa sig af stað en ég geng þá bara betur frá því á eftir.
Við brunuðum þá í Langholtskirkju en þangað hef ég ekki komið fyrr. Ég var auðvitað bara í mínum hvunndagsklæðum og ekki einu sinni þeim skástu úr farangrinum en eins og naglasúpuflakkarinn sagði hér um árið: Hafa skal það sem hendi er næst og hugsa ekki um það sem ekki fæst. Við settumst aftarlega hjá Hlíf og biðum svo í ofvæni eftir að sjá pabba hennar arka á inn á svæðið. Svona glimrandi fínan í kjólfötum eins og vera ber. Ég leit aftur fyrir mig og fann út að þar sæi enginn til mín, skaust svo niður á fimm ára stigið og veifaði stóra bróður ;) Spáði auðvitað ekkert í að heill karlakór sæi mig líklega. Gaman að vera fimm ára. Minnir mig. Oftast nær. Hann sá okkur.
Mér þóttu tónleikarnir ágætir og í hléi var tekið fram að í boði væru veitingar í hliðarsal og þar blasti við einn munurinn á borgarmenningunni og sveitamenningunni heima: Veitingarnar sem hægt var að kaupa voru kaffi, kókdósir og prinspóló. Á vortónleikum Hreims framreiða eiginkonur kórfélaga kaffihlaðborð sem fengju færustu bakara til að roðna.
Ég er óvön að vera á fjölmennu mannamóti þar sem ég þekki ekki nema 6 andlit. Alls ekkert óþægilegt samt, bara óvenjulegt.
Svo ekur Þóra sem leið lá heim til sín upp í Árbæjarhverfi og var eftir mætti að reyna að segja mér til á leiðinni í von um að ég kæmist klakklaust til baka, en sko: Í fyrsta lagi snéri þá allt hinsegin (Svava, ég veit þú skilur mig). Svo hverfa áttirnar út í buskann um leið og ég kem fyrir næsta horn og auk þess var myrkur og ausandi rigning þannig ekki var hægt að miða við afstöðu sólar eða fjallasýn. Ég fann mér tvisvar rólegt plan til að skoða kortið og heim komst ég áður en morgnaði. Löngu áður meir að segja. Alls ekki þó eftir þeim götum sem Þóra nefndi held ég.



» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2009 07:47:39 / tumsa

102. Heim

Búin að bóka far norður eftir hádegi á föstudag. Tímabært að fara að tékka á lömbum og svo hefur víst fjölgað á heimilinu. Sá nýjasti er fjórfættur með skott. Mynd af honum við fyrsta tækifæri.

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2009 10:01:25 / tumsa

101. Pólitíkin

Ég talaði við eiginmanninn í gærmorgun. Hann lýsti sárum vonbrigðum með að missa framsóknarmann í okkar kjördæmi fyrir sjálfstæðismann í suðurkjördæmi. Ég vorkenndi honum ofurlítið en svo segir hann og ber sig nú betur: En þetta getur allt lagast í framtíðinni, ég er nú með einn góðan hérna hjá mér. Þá voru þeir Jakob ömmustrákur búnir að fara í vinnuna um morguninn og hitta menn á bæjunum þar sem pólitíkin barst í tal (Já, skrýtið!) og einn bóndinn hafði við orð að það væri nú laglega búið að heilaþvo hann þennan! Á öðrum bæ sagði 10 ára guttinn: Vinstri grænir eru nú ekki að gera neitt fyrir atvinnulífið hérna!!! Bóndinn góndi bara á barnið og hakan seig. :haha:
Þegar ég hætti að hlæja sagði ég að ég yrði greinilega að fara að drífa mig norður og laga þetta, það er auðvitað óverjandi að barnið búi við þessar uppeldisaðstæður.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.04.2009 21:53:24 / tumsa

100. Ég á hann!

Keypti hjálminn á 2500.
Glöð með það.
Mynd seinna þegar ég er búin að bera á hann og setja á sinn stað.



» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2009 04:58:49 / tumsa

99. Vegalengdir

Brá mér í gær á bæjarrölt. Hugðist sækja bók á Bræðraborgarstíg en kom þar að lokuðum dyrum. Labbaði frá Landsspítalanum, yfir tjörnina, nei ég gekk ekki á vatninu, dólaði í gegn um kirkjugarðinn sem ég held ekki að ég hafi komið inn í fyrr, hitti ekki Herdísi langömmu mína þar, þarf að leita seinna. Labbaði endilangan Bræðraborgarstíg, Vesturgötu, leit inn hjá Fríðu frænku, ekki systur, og sá þar sjúklegan grip. Kúptur, flúraður hjálmur eða hlemmur úr pottjárni sem hægt væri að hafa ofan á fína kolaofninum mínum :!: Ekki fengust upplýsingar um verð en hægt að finna út úr því í dag. Ég reyndi að láta sem mig langaði ekkert rosalega í hann. Ég var svöng en nennti ekki að gera neitt í málinu. Ég skal hundur heita ef ég hef ekki rýrnað eitthvað örlítið á þessari viku. Labbaði Laufásveginn og sá ýmis sendiráð. Lét ógert að heilsa upp á íbúana og var ekkert að skvetta þar málningu heldur. Þetta tók talsvert á annan klukkutíma og alveg greinilegt að ég er í akkúrat engri þjálfun. Hafi ég ekki vitað það fyrr, komst ég að því að það er glettilega mikið landslag í Reykjavík. Ég er að borða skólakrít.

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2009 11:00:00 / tumsa

98. Nú er sumar, gleðjist gumar..

Steingleymdi í gærmorgun:
GLEÐILEGT SUMAR.
Sumar skiptir mig miklu máli, ég gleðst yfir því ekki síður en gumarnir.
Það var mjög gaman í gær:
Skrúðganga, skátamessa, danssýning.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2009 08:32:43 / tumsa

97. Styttur

Tók mig til áðan og fann mér skæri hérna í eldhúsinu og klippti styttur í hárið á mér. Jájá, allan hringinn. Alltaf sama vesenið að þegar maður horfir í spegil og færir skærin áfram þá fara þau afturábak. Þetta var líka svona þegar ég var lítil, furðulegt að þetta skuli ekkert lagast með tímanum eins og veröldin þróast nú á ýmsum sviðum. Bráðum fer ég og horfi á nöfnu mína í skrúðgöngu og svo á frænku mína dansa og svo fer ég til pabba míns.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2009 07:22:23 / tumsa

96. Rati

Mér fer örlítið fram að rata og keyra um bæinn. Enn er þó talsvert í að ég geri það mér til ánægju.
Ef það skyldi hafa farið fram hjá ykkur þá er nokkuð um rok og rigningu í þessum bæ. Ég rölti með ömmubörnunum í skólann á morgnana en að öðru leyti held ég mig mest innandyra. Er á Landsspítalanum frá því upp úr hádeginu og fram á kvöldið.
Kaus í gær en á eftir að koma frá mér atkvæðinu.

Það er bara nokkuð gaman að vera til ef maður passar sig á að umgangast bara skemmtilegt fólk. Ég er í því á fullu þessa dagana.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 04:07:43 / tumsa

95.Borgarlífið

Þarf að fara að kynna mér utankjörfundaratkvæðagreiðslustaði.
Tilveran er ekki alveg alltaf nákvæmlega eins og maður vildi helst hafa hana.
Spítalalíf er öðruvísi.
Nafna mín er indæl og gott að fá að umgangast hana svolítið.
Allir (næstum því ) eru indælir.
Ég hvessti mig á spítalanum í gær.
Við Ingimundur og pabbi veltumst um af hlátri á spítalanum í gær. Þá vorum við að velta fyrir okkur möguleikum pabba á að leggja fyrir sig eiturlyfjasmygl. Niðurstaða hans var sú að hann taldi sig ekki búa yfir hæfileikum til þess.
Mér er illa við orðið niðurskurð. Það fer ekki vel með orðinu uppskurður.
Ég á stóóóra fjölskyldu.
Krabbar eru kvikindi.
Ég biðst afsökunar á fordómum mínum og alhæfingum í sambandi við dýrategundir.
Ég er við fína heilsu, um að gera að muna eftir að njóta þess.
Keypti mér föt - í Kolaportinu. Og handverkshráefni.
Í örfáum tilvikum væri hentugra að búa fyrir sunnan. Bara örfáum.


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2009 01:45:22 / tumsa

94. Römm er sú taug er rekka...

Eða það eru víst öðruvísi rekkar.
Ég er búin að smíða rekkann sem ég er búin að vera að hugsa um lengi. Diskarnir mínir eru of þungir til að mér finnist hægt að geyma þá í stafla svo að ég hef verið að hanna húsgagn fyrir þá og það virkar fínt. Pláss fyrir 30 stykki.




» 7 hafa sagt sína skoðun

17.04.2009 06:51:33 / tumsa

93. Morgunaflinn



» 6 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 22:15:33 / tumsa

92. Hugmyndir

Ég veit ekki með ykkur, en ég fæ langbestu hugmyndirnar þegar ég er að vakna á morgnana. Jafnvel stundum í draumi. Að morgni páskadags var ég að velta fyrir mér hvernig væri hægt að stilla upp treflum og sjölum í Kaðlín. Þetta eru fallegir gripir, oft úr eingirni og ekkert gaman að láta þá bara liggja í hillum. Við höfum notað pappahólka og leirpotta meðal annars og ég velti fyrir mér glerkrukkum. Hm. Þær meiga þá ekki rúlla út á gólf, það er óhollt fyrir gler. Tylla þeim einhvern veginn á fjöl? Hvernig þá? Fræsa einhvern veginn fyrir þeim? Það er bras. Svo kviknaði allt í einu á perunni og ég þaut á fætur fyrir klukkan sex og byrjaði.

Skrúfaði lokin föst á fjöl og svo eru krukkurnar skrúfaðar á og af eftir þörfum!!

Fyrst ég var byrjuð gerði ég eina fjöl fyrir sjöl með fáum stórum krukkum og aðra fyrir barnahúfur með mörgum misstórum krukkum. Held að þetta svínvirki.
Í miðri messunni seinna um daginn fékk ég svo aðra þrusuhugmynd sem varðar fötin mín en það er ekki tímabært að birta hana.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 21:54:55 / tumsa

91. Pottast um

Þetta er nokkuð sem sumir gera árlega. Það er fjarri því að ég komi því í verk svo oft. Tvö eða þrjú ár síðan síðast hugsa ég. Að minnsta kosti. Einu sinni var ég með skærgræna fingur, átti iðulega vel yfir hundrað potta og las blómabækur aftur á bak og áfram og kann fullt af latneskum heitum án þess að vita það eiginlega. Þau koma oft svona ósjálfrátt upp í hugann þegar ég sé plöntuna. Núna segi ég að ef plönturnar gætu lesið bækurnar mínar um hvað þær þola og þurfa, þá væru þær steindauðar allar með tölu. Oft stendur líka í bókunum að þessi eða hin plantan blómstri ekki í heimahúsum en mínar vita það ekki svo þær gera það samt.

Agnar er lengi búinn að halda því fram að Aloe plönturnar mínar séu orðnar hálfgerð skrímsli í norðurglugganum. Ég hef haft þann hátt á að halda alltaf áfram með elstu plöntuna en setja svo aðra í pott sem má ganga í eftir þörfum á brunasár og slíkt.

Hér er ættmóðirin fyrir og eftir umpottun. Það sést varla en hún fer í nokkra hringi þarna ofan í pottinum. Og blómstrar alltaf reglulega.


Hér er það sem ég fargaði.
Úr báðum pottum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 16:10:28 / tumsa

90. Suður

Búin að slá því föstu að ég fer suður á laugardaginn. Hef ábyggilega ekki fyrr á ævinni farið þangað svo oft á einum vetri.

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 05:18:51 / tumsa

89. Rop

Það er nýstárlegt þetta vorið að aðal fuglamorgun"söngurinn" hér er rjúpnarop.
Já neinei þið þarna synir okkar sem fáið fiðring í gikkfingur:
Öll meðferð skotvopna er stranglega bönnuð í Norðurhlíðarskógi.
:) :d :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  128  Alls: 159665
Klukkan
Leitarbox