handverkur
04.11.2009 21:47:46 / tumsa

234. Doktorinn segir

Æijæja. Ekki vildi hún telja að ég væri með svínaflensuna. Henni fannst vanta háa hitann og höfuðverkina. Ég tefldi fram hálssærindum, miklum hósta (sem er að rífa raddböndin í hengla), sleni, beinverkjum og hitavellu. Hún gerði próf sem útilokaði bakteríu en sagði að það væri á ferðinni mikið úrval af veirum og það væri því ekki rétt að treysta því að ég væri að klára svínið. Hún hlustaði og sagði að allt væri í lagi í lungum svo að það er ekkert að gera nema bíða og þegja. Ég spurði um ráð gegn hóstanum af því að hann er mér svo skæður og hún sagði að af og til mætti prófa parkodín, svona ef hóstinn virðist ekki vera að hreinsa neitt, það gæti dregið úr pirringnum í hálsinum. Ég drekk svo mikið fjallagrasate að ég er að verða leið á því. Það gerir að minnsta kosti ekki ógagn en ekki slekkur það á hóstanum. Veit auðvitað ekkert hvernig ég væri ef ég notaði ekki grösin.
 Þarf að spyrja mömmu hvort ég hafi fengið flensu ársgömul. Manstu það nokkuð Einar? Þú varst orðinn alveg hreint fimm ára og elstur okkar fjögurra. Ætli flensan hafi verið í byrjun eða enda árs? Á undan eða eftir botnlangabólgunni?
Heilsufar Kvart
Fríða skrifaði
Ég veit til dæmis að ég fékk ekki umrædda flensu. En ég ætla samt að vera staðráðin í því áfram að ég sé ónæm fyrir öllu þessu dóti. Mamma var með hlustarverk í gær
ella skrifaði
Ójá Fríða mín, sumir eru bara alltaf að missa af vegna þess að þeir eru ekki fæddir. :) Spurðu bara Óttar.
Hún nefndi það ekki í dag svo að það hefur vonandi verið búið.
hildigunnur skrifaði
Fáðu doktoressuna til að gefa út lyfseðil fyrir ofurhóstasaftinni sem er bara búin til í Árbæjarapóteki, mér finnst enn að hún hafi bjargað lífi mínu í lungnabólgunni hér fyrir tveimur árum!
ella skrifaði
Fæst það þá í fleiri apótekum? Hefurðu nafnið?
Kristín í París skrifaði
Batnaðarkveðja frá hestaheilsufólkinu í menguninni í París (og nú lem ég þrisvar í tré og segi 7, 9, 13).
Fríða skrifaði
konurnar í kórnum segja það vera allra meina bót að urra svona með raddböndunum eins og maður sé að reyna að ná dýpri tóni en maður getur, maður er látinn gera þetta með upphitunaræfingunum fyrir kóræfingarnar. Ég hélt reyndar að þetta væri ekki sniðugt, hafði einhverntíma heyrt það, en ég held að það hafi verið misskilningur hjá mér, þetta allavega virkar hjá mér ef mér finnst ég vera hás eða pirruð í hálsinum. Það er eins og raddböndin hreinsist við þetta. Og ég veit þú kannt þetta því ég hef heyrt það til þín.
ella skrifaði
Eins og þegar ég var að herma eftir mótorhjóli í rúminu mínu inni hjá pabba og mömmu í suðvesturhorni hússins? Þau kunnu ekki að meta hvað mér tókst vel upp og sögðu mér að þegja. Við áttum víst öll að vera sofandi.
Held að ég eigi tvímælalaust að þegja áfram um sinn og leyfa sárunum að gróa.
ella skrifaði
Já og takk dama, meiddu þig ekki á hnúunum.
Einar skrifaði
Læknirinn hefur líklega ekki lesið <a href=http://www.newscientist.com/article/dn18058-swine-flu-myth-the-symptoms-are-like-regular-flu-youve-got-it-if-youve-got-a-fever.html>þetta</a>.
Fríða skrifaði
Þetta er svolítið athyglisverð grein. Þá held ég nefnilega að við hér á heimilinu séum búin með þennan pakka, þ.e. að verða búin með hann reyndar, krakkarnir hafa kvartað undan magaverkjum og hálsverkjum. Ívar var reyndar með hita, en það er ekki að marka, hann verður alltaf langmest veikur ef einhver veikist hér.
ella skrifaði
Hvahh, hvurt fór mitt svar til Einars? Ég sagði þar að hún vildi ekki fullyrða neitt en taldi líklegara að þetta væri vegna annarrar veiru og vissara fyrir mig að fara í svínasprautu.
hildigunnur skrifaði
já það heitir skal ég segja þér *fer í ísskápinn og nær í flöskuna* Syr codeicus eitthvað. Ekkert brand name. Ekki viss um að það fáist annars staðar en kannski er hægt að láta senda þetta.
hildigunnur skrifaði
já og urrið er af svolítið öðrum toga þegar það er sjálfgert en þegar maður getur ekki annað.

Vísa svo hingað í nýjustu færslunni minni...
maria (mið) skrifaði
haha ég er sko ekki búin að fá neina flensu, það gerir brekkuloftið.
ella skrifaði
Ertu örugglega ekki María hin?

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  357  Alls: 147544
Klukkan
Leitarbox