|
13.03.2010 08:28:27 / tumsa
Ég var eitthvað að huga að innri stofuglugganum og sá þá glitta í eitthvað fínt á bak við litla kaktusinn svo að ég snéri honum við og sótti myndavélina.
 Þessi kaktus hefur áður verið hér á mynd. Það var fyrir tæpu ári þegar ég var að umpotta og endurskipuleggja. Tókst þá raunar aldrei að ljúka við það svo að ég er ákveðin í að taka bráðum blómatörn. Það gerist annars yfirleitt alls ekki árlega en þau tóra nú samt greyin. Svona var hann þá.
»
12.03.2010 10:59:39 / tumsa
Ég hef aldrei getað sett mig í spor fólks með skóáráttu. Það líða alltaf einhver ár á milli þess sem ég fjárfesti í þeirri vöru og hef ekkert gaman af verkinu. Í gær lét ég verða af því að kaupa gönguskó þegar ég var búin að fara yfir stöðuna með doktornum. Fimmtánþúsundkall finnst mér hellingur en virðist ódýrt miðað við það sem í boði er á markaðnum. Spurning um að fara að senda þá af stað til æfinga, þeir eru sallarólegir ennþá. Ætti til dæmis kannski að gá að hundinum. Dagurinn í gær var svo langur að ég nenni illa að byrja á þessum.
»
11.03.2010 07:38:46 / tumsa
Fékk tíma hjá bæklunarlækni á Akureyri í dag svo að ég fór að garfa í gleri til að nota ferðina í svo sem eins og einn glerofn. Geri eðaldiska úr fjósgluggum nágrannans. Haldiði ekki að ég hafi svo þurft að skera mig á einni fjárans rúðunni þegar ég var að þrífa þær! Bara sisvona eins og byrjandi. Subbulegt. Finn hvergi vinnustofuhamarinn minn. Hann er alger nauðsyn til að berja koparinn sléttan þegar ég er búin að klippa hann. Dem. Gaurinn í útvarpinu sagði áðan að í dag væri 70. dagur ársins, það vantar ekkert svo mikið upp á að hér sé eitt blogg á dag. Ég hélt að ég væri töluvert undir því. Ojæja. Færið mér hamarinn minn.
»
10.03.2010 21:26:50 / tumsa
Nú er komin gagnrýni á fréttasíðuna sem ég merki sem Þingeyjarsveit í tenglunum: http://www.123.is/641/Þetta er líklega það sem kemur líka í Vikudegi á morgun. Það skal tekið fram að þar sem talað er um gömlu brýnin er átt við okkur fimm sem teljumst fullorðin. Allir hinir leikararnir eru framhaldsskólanemendur. Þetta er tilvitnun í leikskrána.
»
09.03.2010 11:44:15 / tumsa
Súlan á hitamælinum norðan á eldhúsglugganum nær upp að átta núna. Ég er að hugsa um að láta eins og komið sé sumar og skreppa út með pússivélina og pússa nokkrar beintölur. Fer bara í ullarsokka og stígvél enda þarf ég að vaða skafla í garðinum þó að ég standi á auðu við borðið.
»
06.03.2010 16:21:35 / tumsa
Það að halda því fram að mér beri að kjósa vegna þess að ég meigi það en ekki einhver annar, er álíka gáfulegt og að halda því fram að mér beri skylda til að vera í peysu þó að mér sé alveg nógu heitt án hennar bara vegna þess að einhver annar er ekki svo heppinn að eiga peysu. Eða að heimta að barn borði meir en það hefur lyst á vegna þess að til séu svo mörg svöng börn í útlöndum. Mér ber að leysa vanda svangra og kaldra eftir megni en þetta er bara ekki aðferðin.
Tek það skýrt fram að ég er á því að fólk eigi að fá að lýsa skoðun sinni á því sem skiptir máli og ég lýsi skoðun minni á þessu tiltekna máli með því að sitja heima og segi þar með að ég tek ekki þátt í þessari endileysu.
»
06.03.2010 11:48:49 / tumsa
Ég hef endalausan áhuga á tungumálinu mínu. Oft verð ég hissa og stundum steinhissa á notkun fólks á þessu tungumáli. Hvað á til dæmis að fyrirstilla (ég veit, þetta er sletta) þetta endalausa tuð um fyrstu þjóðaratkvæðagreiðsluna hér?? Fer ekki fram þjóðaratkvæðagreiðsla í hvert skipti sem við veljum okkur forseta til dæmis? Og var ekki þjóðaratkvæðagreiðsla þegar kosið var um hvort við ættum að lýsa yfir sjálfstæði? Afsakið mig ef ég fer ekki rétt með þarna, þetta var nokkuð fyrir mitt minni. Já og best að lýsa því yfir í leiðinni á mínu mjög svo ópólitíska bloggi að ég ætla að verja tíma mínum annars staðar en á kjörstað í dag. Hvað svo sem samkoman heitir.
»
06.03.2010 11:29:52 / tumsa
Stuð í leikhúsinu. Það er svo gaman að hafa gaman. Þá getur maður til dæmis alveg sætt sig við að finna næstum stöðugt til í fætinum. Mér finnst alveg meiga fara að lygna.
»
04.03.2010 10:08:39 / tumsa
Hvenær er maður gamall og hvenær er maður ekki gamall, það er spurningin. Ég er vönust að gaspra um að það fari nú allt eftir því hvernig maður er innréttaður andlega og svo framvegis og svo fer þetta líka mikið eftir því hvaða tímabil er skoðað. Í gömlu bókunum sem ég les nú um stundir er talað um gamalt fólk sem ég sé af samhenginu að er jafnvel ekki mikið yfir fertugu stundum. Mér finnst oftast nær að ég sé kornung á sama tíma og ég gengst upp í að tala um að ég sé nokkuð á sextugsaldri. Nú var staðfest í gær að það sem ég er búin að finna um alllangan tíma í hægra fæti er slitgigt og komnar beinútfellingar við liðinn ofan við stórutána. Oft hefur verið óþægilegt á undanförnum árum að fara niður stigann hérna. Þegar ég nefndi við móður mína í fyrradag að ég ætti tíma hjá lækni í gær og hversvegna, þá flissaði hún og fræddi mig á að þetta héti áreiðanlega þvagsýrugigt og legðist helst á gamla drykkjumenn! Þegar ég velti málinu fyrir mér giska ég á að samanlögð áfengisneysla mín um æfina sé varla meira en það sem margur fer létt með að innbyrða á fáeinum vikum og er þá varlega áætlað. Við verðum bara að sætta okkur við að mömmur eru ekki óskeikular. (uppfært: Þetta síðasta gildir ekki fyrir syni mína.) Eftir stendur að í mínum huga er samasemmerki á milli elli og giktar. Best að fara að leita að einhverjum sem ég get gefið próventu mína. Ég verð líka að finna gönguskó sem passa á þessa asnalegu löpp.
»
02.03.2010 08:02:23 / tumsa
Nú þarf ég að leggja land undir fót/hjól. Tannlæknir á Akureyri í dag og eins og alltaf plús-mínus hundrað erindi í leiðinni. Það væri nú allt í lagi ef ekki væri fleira á dagskránni en ég ætla líka að vera á Húsavík í dag svo að ég bruna þangað helst ekki mikið seinna en klukkan tvö til að vera komin á svæðið að ganga fjögur og vinn með uppstillingarnefndinni að því gera búðina fína. Þar er búið að pússa og bera fernisolíu á gólfin setja upp ný ljós og dytta að ýmsu. Við ætlum að koma öllum vörum fallega fyrir og hæpið að klárist í kvöld en við sjáum til. Lítur út fyrir þokkalegasta ferðaveður.
»
28.02.2010 19:10:47 / tumsa
»
26.02.2010 09:39:58 / tumsa
Generalprufan í gærkvöldi mátti tæpast vera betri, áhorfendur himinlifandi, verður enn betra í kvöld. Uppselt á frumsýninguna og hellings pantanar komnar fyrir framtíðina. http://www.123.is/641/blog/record/436794/ Allir í kaffileikhús á Breiðumýri á framúrskarandi flottan nýjan söngleik! Fiðrildi í maganum og mikil tilhlökkun.
»
24.02.2010 09:17:44 / tumsa
 Þegar ég leit út um glugga á milli élja í fyrrinótt blasti við þessi fína músaslóð. Hana fennti fljótlega. Þarna er svo bílaflotinn í morgun.
 Hitamælir bílsins sem ég kom heim í í gærkvöldi sýndi 19 stiga frost hér á hlaðinu en þegar ég leit á mælinn við eldhúsgluggann voru þar ekki nema 13. Hann er náttúrulega upp við kynt húsið svo að líklega er í lagi að fara milliveg í þessu. Sjónvarpsmenn frá rúv voru með okkur í gærkvöldi svo að búast má við einhverra sekúndna skoti í fréttum um helgina skilst mér.
»
23.02.2010 15:16:15 / tumsa
Til hamingju með afmælið Tóta.
»
23.02.2010 10:20:58 / tumsa
Nú er í mörgu að snúast. Í gær fór ég í vinnuna upp úr klukkan ellefu, var búin hálf fjögur, hirti þá upp eina skólastelpu sem ætlar að vinna með okkur við hár og förðun, fór á hárgreiðslustofu og var þar lengi, var sagt þar að ég ætti að fara á snyrtistofu í næst næsta húsi og ég er alltaf ákaflega hlýðin og fór á snyrtistofu í fyrsta sinn á æfinni og ekkert borgað á þessum stöðum. Allt fyrir listina. Þaðan beint á æfingu og klúðraði óvenju miklu, fékk reyndar hrós fyrir en verð að gera betur í kvöld. Þetta er alltaf svona þegar eitthvað breytist, gerfi eða annað, það er stundum eins og maður sé ekki fær um að ganga, tala og labba í einu. Þá er það frá og þessi mistök geri ég ekki aftur. Þegar ég kom heim undir miðnætti glotti bara maðurinn minn út í annað. Nú er að fara að vaða snjóinn út í Tumsu og búa til tvenn djöflahorn og eitt stykki hárband sem er víst nýjasta nýtt í dag og minnir helst á gömlu góðu hippaböndin. Ég vil fá mína gömlu rödd aftur. Það verður líklega að gera eitthvað róttækt í því. Gleymdi að segja ykkur að leikstjórinn og tónskáldið voru í viðtali á laugardagsmorguninn í þættinum Bergsson og Blöndal (eða var það öfugt?) Þar voru leikin tvö lög af diskinum og til að hlusta getið þið farið á dagskrá þessa dags, smellt á hljóðmerkið við þáttinn og skrunað svo eftir stikunni neðst þangað til klukkan sýnir 01:28:10. Lögin eru flott sýnishorn af því sem við erum að gera.
»
Síður: 1 2 3 ... 48
|